Lengjudeildin fer af stað í vikunni og ætla Grindvíkingar að taka þátt í toppbaráttunni. Félagið kynnti í dag nýja varatreyju sína.
„Þemað í búningnum vísar til eldsumbrotanna í nálægð við bæinn; nýstorknað hraun sem flæðir fram með kvikugang beggja vegna." segir í tilkynningu Grindvíkinga.
En myndir, og myndband, segja meira en mörg orð!

Grindavík hefur Lengjudeild karla á stórleik fyrstu umferðar, heimaleik gegn ÍBV á föstudagskvöld. Í kvennaflokki byrjar Grindavík Lengjudeildina á leik gegn Aftureldingu á fimmtudag.
Nýr varabúningur Grindavíkur🌋
— UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur (@umfg) May 4, 2021
Grindavík kynnir nýja varabúninga félagsins. Þemað í búningnum vísar til eldsumbrotanna í nálægð við bæinn; nýstorknað hraun sem flæðir fram með kvikugang beggja vegna.
Við svífum á bleiku skýi með þessa nýju búninga!
Áfram Grindavík! 💙💛 pic.twitter.com/IpGLSNRk2Q
Athugasemdir