Cluj gerði í gær 1-1 jafntefli gegn FCSB í toppslag rúmensku deildarinnar. Cluj er í toppsætinu þegar fimm umferðir eru eftir með tveggja stiga forskot á FCSB.
Rúnar Már Sigurjónsson var í byrjunarliði gestanna í FCSB og lék fyrstu 77 mínúturnar. Staðan var 1-0 fyrir heimamenn þegar Rúnar fór á velli en gestirnir náðu í stigið með því að jafna á þriðju mínútu uppbótartíma.

Í sænsku B-deildinni vann GAIS 3-2 endurkomu sigur gegn Östers í 4. umferð deildarinnar.
Alex Þór Hauksson var ekki í leikmannahópi Östers þar sem hann glímir við meiðsli. Östers komst í 0-2 með mörkum á 62. og 65. mínútu en GAIS jafnaði leikinn á síðustu tíu mínútunum. Jöfnunarmarkið kom á 90. mínútu.
Sigurmarkið kom svo á 8. mínútu uppbótartíma. Ansi svekkjandi fyrir Östers eftir að hafa verið í góðri stöðu. Þetta var fyrsta tap Östers á tímabilinu, liðið er með sjö stig en GAIS er með tíu stig.
Gjörsamlega lasinn leikur í Superettunni! Östers 0-2 yfir á 82.mínútu....GAIS með proper comeback og winner á 98 mín🤯 https://t.co/vwEsIDUHpu
— Guðlaugur Valgeirsson (@GulliValgeirs) May 4, 2021
Athugasemdir