Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   mán 04. maí 2026 16:53
Elvar Geir Magnússon
Joao Pedro: Við leikmenn þurfum að líta í eigin barm
Mynd: EPA
Hrakfarir Chelsea halda áfram en liðið tapaði í dag á niðurlægjandi hátt á heimavelli gegn Nottingham Forest 1-3. Þetta var sjötti tapleikur Chelsea í röð.

Joao Pedro minnkaði muninn fyrir Chelsea í uppbótartíma með stórkostlegu hjólhestaspyrnumarki.

„Við lentum undir strax í byrjun og gegn Forest er erfitt að breyta leiknum. Mér fannst við eiga að gera betur. Við þurfum að finna leið til að gera ekki þessi mistök í hverjum leik. Við þurfum að fara að vinna leiki," sagði Pedro eftir tapið gegn Forest.

„Það er mjög erfitt að koma til baka ef maður lendir snemma undir í ensku úrvalsdeildinni. Allir þurfa að líta í eigin barm, ég þar á meðal. Við þurfum að finna leið til að gera betur. Ég vorkenni stuðningsmönnum."

Bráðabirgðastjórinn Calum McFarlane stýrir Chelsea eftir að Liam Rosenior var rekinn.

„Ég tel að þetta snúist ekki um þjálfarann heldur okkur leikmennina. Það er okkar að stíga upp, ég meðtalinn. Við tölum saman og reynum að finna leiðir til að vinna leiki. Við þurfum að berjast fyrir hverju stigi og sjá hvert það leiðir okkur."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 35 21 9 5 69 32 +37 72
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 35 17 7 11 48 44 +4 58
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 10 12 52 46 +6 52
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 35 13 9 13 44 44 0 48
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 35 13 6 16 49 51 -2 45
14 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
15 Crystal Palace 34 11 10 13 36 42 -6 43
16 Nott. Forest 35 11 9 15 44 46 -2 42
17 Tottenham 35 9 10 16 45 54 -9 37
18 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner
banner