Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
banner
   mán 04. maí 2026 16:42
Elvar Geir Magnússon
Sels: Ekki komið en næstum því
Sels varði vítaspyrnu frá Cole Palmer.
Sels varði vítaspyrnu frá Cole Palmer.
Mynd: EPA
Nottingham Forest vann mikilvægan 3-1 útisigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Liðið er nú í sextánda sæti, sex stigum fyrir ofan fallsvæðið, og nálægt því að tryggja áframhaldandi veru í deild þeirra bestu.

Matz Sels, markvörður Forest, varði vítaspyrnu frá Cole Palmer í sigrinum gegn Chelsea. Palmer hefði þar getað minnkað muninn í 1-2 rétt fyrir hálfleik.

„Þetta var mikilvægur tímapunktur, rétt fyrir hálfleik og Chelsea að reyna að koma sér inn í leikinn. Ég er ánægður með að hafa hjálpað liðinu á svona stórum tímapunkti og þessi sigur er okkur gríðarlega mikilvægur. Það eru enn þrír leikir eftir og þetta er ekki alveg komið, en næstum því," segir Sels.

„Þetta er að ganga vel hjá okkur, stjórinn (Vítor Pereira) kemur með mjög jálvæða orku. Hann gerði margar breytingar á liðinu í dag en þeir sem komu inn stóðu sig virkilega vel og ég er ánægður fyrir þeirra hönd."

Nottingham Forest heimsækir Aston Villa á fimmtudag í seinni leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Forest vann 1-0 sigur í fyrri leiknum.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 34 21 8 5 69 32 +37 71
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 35 17 7 11 48 44 +4 58
6 Brighton 36 14 11 11 51 42 +9 53
7 Bournemouth 36 12 17 7 55 52 +3 53
8 Brentford 35 14 9 12 52 46 +6 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Fulham 36 14 7 15 44 49 -5 49
11 Everton 35 13 9 13 44 44 0 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 35 13 6 16 49 51 -2 45
14 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
15 Crystal Palace 34 11 10 13 36 42 -6 43
16 Nott. Forest 35 11 9 15 44 46 -2 42
17 Tottenham 35 9 10 16 45 54 -9 37
18 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 36 3 9 24 25 65 -40 18
Slapp
banner