„Þeir líta svakalega vel út, það er ekki hægt að segja annað," sagði Almarr Ormarsson í Innkastinu þegar rætt var um KR sem er með fullt hús stiga eftir fimm leiki í Bestu deildinni. KR-ingar hafa verið magnaðir í upphafi móts.
KR fór á Hlíðarenda á laugardagskvöld og vann þar mjög sannfærandi sigur gegn erkifjendum sínum.
KR fór á Hlíðarenda á laugardagskvöld og vann þar mjög sannfærandi sigur gegn erkifjendum sínum.
Eftir að hafa næstum fallið á síðasta tímabili, þá er orðið ógnvænlegt að mæta KR í dag.
„Maður verður að fara að viðurkenna það bara að þeir eru ógeðslega góðir í fótbolta," sagði Almarr.
Rætt var um það í þættinum að Valur hefði mögulega átt að fá víti í byrjun leiksins og þá hefði leikurinn kannski þróast aðeins öðruvísi. „En þú getur samt ekki sagt það þennan leik 'ef við hefðum skorað úr þessum færum eða ef við hefðum fengið víti'... í 82 mínútur var bara eitt lið á vellinum," sagði Almarr jafnframt. „Þetta var alltaf KR sigur."
Það er mikil stemning í kringum KR akkúrat núna. „Það virðist vera ógeðslega gaman í Vesturbænum, bæði hjá stuðningsmönnum og líka hjá leikmönnum og þjálfarateyminu. Ég hef aldrei séð Óskar (Hrafn Þorvaldsson) brosa jafn mikið."
„Hann dansaði eftir leikinn," sagði Valur. „Þetta er einhver nýr Óskar sem maður er að sjá. Það er hvergi skemmtilegra að vera núna en í Vesturbænum," sagði Almarr.
Stuðningsmenn KR geta klárlega látið sig dreyma eftir þennan leik, þeir sitja á toppnum og eru besta liðið ásamt Víkingum. Hægt er að hlusta á umræðuna alla í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.



