Fotbolti.net
04.06.16 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

John Carver tekur við liði á Kýpur (Staðfest)

Carver er kominn með vinnu

Carver er kominn með vinnu

Canon

Mynd: Getty Images

John Carver, fyrrum stjóri Newcastle, er kominn með nýtt starf, en hefur samþykkt að taka við Omonia Nicosia á Kýpur.
Carver stýrði Newcastle síðari hlutann á þar síðasta tímabili, en liðið bjargaði sér þá frá falli í lokaumferðinni eftir að hafa unnið fáa fótboltaleiki.

Newcastle féll svo á tímabilinu sem var að líða, en Omonia endaði í 4. sæti í kýpversku deildinni á nýliðnu tímabili og mun liðið taka þátt í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar á næsta tímabili.

„Félag okkar tilkynnir það að samningar hafi náðst við John William Carver um að taka við sem þjálfari,\" sagði í yfirlýsingu frá Omonia Nicosia.

„Hr. Carver er í Bandaríkjunum af persónulegum ástæðum, en hann mun hætta í ferð sinni og koma strax til vinnu við að undirbúa liðið fyrir komandi tímabil.\"

„Hr. Carver starfaði hjá Newcastle, þar sem hann vann bæði sem aðalþjálfari og aðstoðarþjálfari, við hlið þjálfara á borð vð Bobby Robson og Alan Pardew. Hann hefur einnig unnið hjá Leeds, Toronto og Sheffield United.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.