Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 04. júní 2019 15:00
Elvar Geir Magnússon
Segist hafa myndband sem gæti eyðilagt feril Neymar
Neymar.
Neymar.
Mynd: Getty Images
Erlendir fjölmiðlar halda áfram að fjalla um ásakanir á hendur Neymar en brasilíski framherjinn er sakaður um nauðgun. Sjálfur heldur hann fram sakleysi sínu og segir að um fjárkúgun sé að ræða.

Konan er brasilísk og lagði fram kæru í Sao Paolo síðasta föstudag.

Fjölmiðlar í Brasilíu segja að lögmannsskrifstofan sem hafi séð um hennar mál hafi sagt upp viðskiptum við hana eftir að í ljós komu mótsagnir í framburði hennar.

Konan hefur hótað því að opinbera myndband sem hún segir að muni eyðileggja feril Neymar og þá á hún að hafa sagt í reiðiskasti að „hún hefði átt að myrða hann meðan tækifæri gafst til".

Neymar verður yfirheyrður vegna málsins en hann hefur tjáð sig á samfélagsmiðlum og segist ákveðinn í að sýna fram sakleysi sitt.

Neymar hefur þegar opinberað samskipti við konuna sem hann átti í gegnum spjallrás á netinu en þau eru sögð hafa átt sér stað eftir að þau höfðu hist í París.

Neymar hafði boðið henni til Parísa og voru saman á hóteli í borginni. Talsmenn leikmannsins segja að allt sem fór fram á milli þeirra umrætt kvöld hafi verið með samþykki beggja aðila.
Athugasemdir
banner
banner
banner