Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 04. júní 2020 15:23
Magnús Már Einarsson
Víkingur tekur yfir æfingar yngri flokka í Safamýri í haust
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á fundi borgarráðs 27. júní 2019 var samþykkt samhljóða að Knattspyrnufélagið Víkingur tæki við rekstri íþróttamannvirkja í Safamýri þegar Fram hefur alfarið flutt starfsemi sína í Úlfarárdal sem er fyrirhugað haustið 2022.

Í kjölfarið var stofnaður vinnuhópur félaganna tveggja, fulltrúa íbúa, ÍTR og ÍBR sem falið var að sinna stefnumótun og innleiðingu flutningsins. Hópurinn hefur hist á reglulegum stöðufundum að því er fram kemur í fréttatilkynningu í dag.

Knattspyrnufélagið Víkingur hefur tekið á þessum tíma markviss skref til að tengja sig við hverfi Safamýrar s.s. með yfirtöku á kvennaknattspyrnu í Safamýri, Íþróttaskóli Víkings hefur tekið til starfa í Álftamýrarskóla og Karatedeild Víkings hefur komið sér fyrir með starfsemi sína í Safamýri.

Nú hefur verið ákveðið að Víkingur taki yfir allar æfingar 7 ára og yngri í handknattleik og knattspyrnu frá og með nýju skólaári í haust. Karatedeild Víkings reið á vaðið í janúar síðastliðnum en nú bætast handknattleikur og knattspyrna við.

Frekari upplýsingar vegna þessa verða kynntar í ágúst með kynningum til foreldra og til skólastjórnenda í hverfinu.

Stefnt er á að Fram fái nýjan glæsilegan leikvang í Úlfarsárdal árið 2022 en liðið spilar heimaleiki sína í meistaraflokki áfram í Safamýri í sumar og á næsta ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner