Fotbolti.net
04.06.21 - 11:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tuchel skrifar undir tveggja ára framlengingu (Staðfest)

Tuchel skrifar undir tveggja ára framlengingu (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel hefur skrifað undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum við Chelsea. Tuchel tók við sem stjóri Chelsea í janúar og skrifaði undir eins og hálfs árs samning.

Hann er því nú samningsbundinn út tímabilið 2023/24. Tuchel stýrði liði Chelsea í 4. sætið í ensku úrvalsdeildinni og vann Meistaradeildina nú á dögunum.
Chelsea tapaði gegn Leicester í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar en liðið svaraði tveimur vikum síðar gegn Manchester City í úrslitaleik Meistaradeildarinnar með mjög góðri frammistöðu og verðskulduðum sigri.

Chelsea vann nítján af 30 leikjum sínum undir stjórn Tuchel á þessari leiktíð, fékk á sig sextán mörk og einungis fimm leikir töpuðust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.