Linda Líf Boama hefur farið stórkostlega af stað í Svíþjóð eftir félagaskipti sín til Kristianstad frá Víkingi í vetur. Hún hefur skorað fimm mörk og er markahæsti leikmaður sænsku deildarinnar. Ásamt því hefur hún lagt upp tvö í sjö leikjum.
Linda er aftur að spila undir stjórn Nik Chamberlain en þau þekkjast vel úr Þrótti.
Linda er aftur að spila undir stjórn Nik Chamberlain en þau þekkjast vel úr Þrótti.
„Þetta er búið að vera æði," sagði Linda Líf um tímann í Kristianstad til þessa.
„Þetta byrjaði svakalega vel. Við unnum fyrstu þrjá leikina en höfum átt erfiða leiki undanfarið. Ég hef trú á þessu verkefni."
Hún hefur verið fljót að aðlagast sænska boltanum. „En það er líka hægt að kalla þetta vöðvaminni, ég hef verið með Nik áður. Ég veit hvernig hann vill spila og hvað hann vill frá mér. Ég held að það hjálpi gríðarlega mikið."
Bjóstu við að byrja svona vel?
„Þetta er fyrsta skrefið í atvinnumennsku. Þetta er þriggja ára samningur og ég ætlaði að taka mér tíma að læra eins mikið og ég get. Ég bjóst ekki alveg við þessu en tek þessu fagnandi."
Hvernig er að spila aftur fyrir Nik?
„Það er bara frábært. Hann er í þessu 4-4-2 tígulmiðjukerfi og sem framherji er þetta bara veisla. Þú þarft að staðsetja þig rétt og þegar boltinn kemur er ekkert annað í boði en að setja hann inn. Ég hugsa enn til baka um tímann í Þrótti með Lauren Wade. Það var draumur í dós. Maður er að leita að þessari kemistríu aftur," sagði Linda Líf í viðtalinu.



