04.06.26 - 13:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leik frestað út af verkefni U19 landsliðsins

Björgvin Brimi er fulltrúi Gróttu í U19.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Grindavík keypti Gunnleif Orra af Breiðabliki í vor.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Björgvin Brimi er fulltrúi Gróttu í U19.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Leik Gróttu og Grindavíkur, sem átti að fara fram á laugardag, hefur verið frestað þar sem bæði félög eru með fulltrúa í U19 landsliðinu sem er að hefja leik í forkeppni EM 2027.
Björgvin Brimi Andrésson er fulltrúi Gróttu í hópnum og þeir Eysteinn Rúnarsson og Gunnleifur Orri Gunnleifsson eru fulltrúar Grindavíkur. Það var Grindavík sem óskaði eftir frestuninni.
Björgvin Brimi Andrésson er fulltrúi Gróttu í hópnum og þeir Eysteinn Rúnarsson og Gunnleifur Orri Gunnleifsson eru fulltrúar Grindavíkur. Það var Grindavík sem óskaði eftir frestuninni.

TENGT EFNI
Hópur U19 - Danmerkurmeistari og fimm Þórsarar
Óvíst er hvenær leikur liðanna verður spilaður en það fer líklegast eftir gengi Gróttu í Mjólkurbikarnum. Grótta á leik gegn Fylki í 8-liða úrslitunum og ef sá leikur tapast opnast gluggi fyrir Grindavíkurleikinn þegar undanúrslitin í Mjólkurbikarnum (24. og 25. júní) verða spiluð.
U19 landsliðið spilar gegn Svartfjallalandi á laugardag og svo Georgíu þremur dögum síðar. Leikirnir fara fram í Georgíu. Liðið sem endar í efsta sæti riðilins fer upp í A deild undankeppninnar fyrir aðra umferð hennar.
8. umferðin í Lengjudeildinni
föstudagur 5. júní
19:15 HK-Afturelding (Kórinn)
19:15 Ægir-Leiknir R. (GeoSalmo völlurinn)
19:15 Njarðvík-ÍR (JBÓ völlurinn)
laugardagur 6. júní
13:00 Vestri-Völsungur (Kerecisvöllurinn)
FRESTAÐ Grótta-Grindavík (Vivaldivöllurinn)
14:00 Fylkir-Þróttur R. (tekk VÖLLURINN)
U19 landsliðið spilar gegn Svartfjallalandi á laugardag og svo Georgíu þremur dögum síðar. Leikirnir fara fram í Georgíu. Liðið sem endar í efsta sæti riðilins fer upp í A deild undankeppninnar fyrir aðra umferð hennar.
8. umferðin í Lengjudeildinni
föstudagur 5. júní
19:15 HK-Afturelding (Kórinn)
19:15 Ægir-Leiknir R. (GeoSalmo völlurinn)
19:15 Njarðvík-ÍR (JBÓ völlurinn)
laugardagur 6. júní
13:00 Vestri-Völsungur (Kerecisvöllurinn)
FRESTAÐ Grótta-Grindavík (Vivaldivöllurinn)
14:00 Fylkir-Þróttur R. (tekk VÖLLURINN)

Grindavík keypti Gunnleif Orra af Breiðabliki í vor.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 14 | +22 | 31 |
| 2 | Þróttur R. | 15 | +17 | 30 |
| 3 | Fylkir | 15 | +10 | 30 |
| 4 | HK | 16 | +9 | 28 |
| 5 | Njarðvík | 15 | +2 | 23 |
| 6 | Grótta | 14 | +1 | 22 |
| 7 | Vestri | 15 | -5 | 21 |
| 8 | Leiknir R. | 15 | -4 | 19 |
| 9 | ÍR | 16 | -9 | 16 |
| 10 | Grindavík | 15 | -5 | 14 |
| 11 | Völsungur | 15 | -15 | 11 |
| 12 | Ægir | 15 | -23 | 8 |

Eysteinn Rúnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð





