Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 04. júlí 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Darian Elizabeth Powell í Aftureldingu (Staðfest)
Darian Powel í leik með Selfyssingum í sumar.
Darian Powel í leik með Selfyssingum í sumar.
Mynd: Anna Þonn - fotbolti.net
Afturelding hefur fengið framherjann Darian Elizabeth Powell til liðs við sig fyrir síðari hluta sumars í Inkasso-deild kvenna.

Powell gekk til liðs við Selfoss fyrir tímabilið en samningi hennar var rift á dögunum.

Powell er 24 ára gömul og lék með sterku liði Marquette University í bandaríska háskólaboltanum áður en hún samdi við Selfoss í Pepsi Max-deildinni í vor.

Hún náði sér ekki á strik með Selfyssingum, spilaði fimm leiki og skoraði í þeim eitt mark.

Afturelding er í 7. sæti í Inkasso-deild kvenna en næsti leikur liðsins er gegn Tindastóli annað kvöld.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner