Fotbolti.net
04.07.19 - 16:55
Elvar Geir Magnússon

Herrera orðinn leikmaður PSG (Staðfest)

Ander Herrera.

Ander Herrera.

Canon

Mynd: Getty Images

Paris Saint-Germain hefur staðfest Ander Herrera sem nýjan leikmann félagsins.

Þessi fyrrum miðjumaður Manchester United hefur gert fimm ára samning í frönsku höfuðborginni.

Herrera, sem er 29 ára, var með lausan samning hjá Manchester United og hóf viðræður um nýjan samning í vetur. Félagið frestaði viðræðunum of lengi og blandaði PSG sér í baráttuna um Spánverjann.

Undir lok tímabilsins kvaddi hann félagið og stuðningsmenn þess. Herrera lék 132 deildarleiki fyrir United og skoraði í þeim tólf mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.