04.07.19 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Júlíus Óli í Fjarðabyggð (Staðfest)

Júlíus Óli er hér til hægri á myndinni en með honum er Guðjón Máni sem gekki til liðs við Fjarðabyggð fyrir upphaf tímabilsins.

Mynd: Breiðablik

Fjarðabyggð hefur fengið Júlíus Óla Stefánsson til liðs við sig frá Selfossi.
Júlíus Oli spilar með liðinu fram í byrjun ágúst áður en hann heldur í nám til Bandaríkjanna.
Júlíus Óli er að góðu kunnur í FJarðabyggð enda bjó hann í Neskaupstað í nokkur ár áður en hann flutti í Kópavog þar sem hann spilaði í yngri flokkum Breiðabliks.
Í sumar hefur Júlíus spilað fjóra leiki með Selfyssingum í 2. deildinni en hann lék ellefu leiki með Augnabliki í 3. deildinni í fyrra.
Fjarðabyggð er í 6. sæti í 2. deild karla en næsti leikur liðsins er gegn KFG á heimavelli á laugardaginn.