Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 04. júlí 2019 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lyon kaupir tvo frá Lille (Staðfest)
Youssouf Kone í leik með unglingalandsliði Malí
Youssouf Kone í leik með unglingalandsliði Malí
Mynd: Getty Images
Lyon keypti í gær tvo leikmenn frá Lille. Það voru þeir Thiago Mendes og Youssouf Kone.

Mendes, sem er 27 ára Brasilíumaður, var við það að ganga í raðir PSG í janúar en Thomas Tuchel, stjóri PSG, gaf ekki leyfi á félagaskiptin og hætti við kaupin. Mendes er talinn kosta um 22 milljónir punda.

Youssouf Kone er 23 ára og er frá Malí. Hann er vinstri bakvörður og á að koma í stað Ferland Mendy. Kone er sagður hafa kostað um 8 milljónir punda.

Lyon hefur í sumar selt þá Ferland Mendy til Real Madrid og Tanguy Ndombele til Tottenham.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner