Miðjumaðurinn Óskar Jónsson var að fá félagaskipti úr Breiðabliki yfir í Gróttu í Inkasso-deildinni.
Óskar er 22 ára gamall og hefur hann ekkert leikið með Blikum í sumar.
Undanfarin þrjú sumur hefur hann verið lánaður frá Blikum í Inkasso-deildina. Í fyrra lék hann með ÍR og Þrótti, 2017 var hann hjá ÍR og 2016 lék hann með Þór Akureyri.
Óskar á einn leik að baki fyrir Blika sem hann spilaði í bikarnum árið 2016.
Lærisveinar Óskars Hrafns Þorvaldssonar hafa verið að gera skemmtilega hluti í Inkasso-deildinni og er liðið sem stendur í öðru sæti deildarinnar. Grótta komst upp í Inkasso-deildina fyrir þetta tímabil.
Næsti leikur Gróttu í Inkasso-deildinni er gegn Njarðvík annað kvöld.
Óskar Jónsson á leiðinni í Gróttu, gátu ekki fundið leikmann sem smellpassar meira inn í það sem þeir eru að gera.
— HrafnkellFreyr (@hrafnkellfreyr) July 3, 2019
Athugasemdir