Fotbolti.net
04.07.19 - 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sevilla kaupir Ocampos frá Marseille (Staðfest)

Ocampos eftir tap Marseille gegn Atletico Madrid í Evrópudeildinni árið 2018

Ocampos eftir tap Marseille gegn Atletico Madrid í Evrópudeildinni árið 2018

Canon

Mynd: Getty Images

Sevilla og Marseille hafa komist að samkomulagi um kaup Sevilla á Lucas Ocampos. Ocampos skrifar undir samning sem gildir út næstu fimm tímabil.

Ocampos eru sjöttu kaup Sevilla á leiktíðinni. Félagið hefur áður gengið frá kaupum á framherjanum Munas Dabbur frá Red Bull Salzburg, Diego Carlos, varnarmanni Nantes, Joan Jordan miðjumanni Eibar, Luuk de Jong framherja PSV og Jules Kounde varnarmanni frá Bordeaux.
Ocampos mun kosta um 12 milljónir punda. Ocampos verður 26 ára gamall þann 11. júlí. Hann getur bæði spilað sem kantmaður eða sem innherji.

Ocampos, sem er fæddur í Argentínu, skoraði 14 mörk í 82 deildarleikjum hjá Marseille.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.