Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 04. júlí 2019 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Víkingur Ó. fær kantmann frá Slóveníu (Staðfest)
Víkingar styrkja sig.
Víkingar styrkja sig.
Mynd: @vikingurol
Víkingur Ólafsvík var að bæta við sig leikmanni fyrir komandi átök í Inkasso-deild karla.

Nýjasti leikmaður liðsins heitir Vidmar Miha og er vinstri kantmaður frá Ljubljana í Slóveníu.

Hann er 22 ára gamall og á hann nokkra leiki í úrvalsdeildunum í Slóveníu og Bosníu. Einnig á hann leiki í næst efstu deild Slóveníu að baki. Síðast var hann á mála hjá NK Krka sem hafnaði í fjórða sæti næst efstu deildar Slóveníu.

Víkingur Ólafsvík er sem stendur í sjöunda sæti Inkasso-deildarinnar. Liðið komst um tíma á topp deildarinnar, en gengi liðsins í síðustu leikjum hefur ekki verið gott.

Næsti leikur Ólsara er á heimavelli gegn Aftureldingu annað kvöld.
Athugasemdir
banner
banner