Davíð Örn Atlason minnti verulega á Louis van Gaal, fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United, í leik gegn KR í Pepsi Max-deildinni í dag.
Í fyrri hálfeik var dæmt brot á Davíð eftir að Óskar Örn Hauksson féll til jarðar. Davíð fannst Óskar falla heldur til auðveldlega og var ekki sáttur með dóminn.
Til að ítrekað það ákvað Davíð að dýfa sér til jarðar. Mjög skemmtilega gert.
Það var ekki ósvipað því sem Van Gaal gerði fyrir nokkrum árum á hliðarlínunni í leik gegn Arsenal. Hér að neðan má sjá myndskeið af báðum atvikum.
Sjá einnig:
Twitter - Davíð Atla eða Louis van Gaal?
Leiklistarskólinn var að hringja og vill fá @davidatla til starfa sem nennir ekki að ræða um mennina í bláu. pic.twitter.com/EciKc1hdN5
— Stöð 2 Sport (@St2Sport) July 4, 2020
Athugasemdir