Hvíti riddarinn fór illa með KFB í A-riðli 4. deildar karla í kvöld, þar sem liðið vann sannfærandi 12-0 sigur. KFK vann á meðan Tindastól, 3-2, í B-riðli deildarinnar.
Eiríkur Þór Bjarkason skoraði þrennu fyrir Hvíta riddarann gegn KFB á meðan Patrekur Orri Guðjónsson, Guðbjörn Smári Birgisson og Haukur Hall Eyþórsson skoruðu allir tvö.
Hvíti riddarinn er í toppsæti A-riðils með 22 stig og markatöluna 51:2. Kría og Árbær eru einu liðin sem hafa náð að skora gegn Hvíra riddaranum í sumar.
Í B-riðlinum vann KFK góðan 3-2 sigur á Tindastóli. Óðinn Ómarsson gerði sigurmark KFK sex mínútum fyrir leikslok en heimamenn höfðu komist yfir í tvígang í leiknum áður en Óðinn tryggði sigurinn.
KFK er á toppnum með 20 stig en Tindastóll í öðru sæti með 17 stig.
A-riðill:
KFB 0 - 12 Hvíti riddarinn
0-1 Eiríkur Þór Bjarkason ('38 )
0-2 Daníel Darri Gunnarsson ('40 )
0-3 Guðbjörn Smári Birgisson ('43 )
0-4 Patrekur Orri Guðjónsson ('53 )
0-5 Eiríkur Þór Bjarkason ('54 )
0-6 Patrekur Orri Guðjónsson ('56 )
0-7 Eiríkur Þór Bjarkason ('58 )
0-8 Guðbjörn Smári Birgisson ('65 )
0-9 Aron Daði Ásbjörnsson ('73 )
0-10 Haukur Hall Eyþórsson ('84 )
0-11 Haukur Hall Eyþórsson ('88 )
0-12 Ísak Máni Viðarsson ('90 )
B-riðill:
KFK 3 - 2 Tindastóll
1-0 Steinar Aron Magnússon ('2 )
1-1 Jónas Aron Ólafsson ('49 )
2-1 Keston George ('75 )
2-2 Konráð Freyr Sigurðsson ('77 , Mark úr víti)
3-2 Óðinn Ómarsson ('84 )
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir