Lárus Orri: Með ólíkindum að við töpuðum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA tapaði gegn Breiðabliki á Akranesi í dag eftir að hafa komist yfir. Fótbolti.net ræddi við Lárus Orra Sigurðsson, þjálfara ÍA, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍA 1 - 2 Breiðablik
„Ótrúlegt að við skildum tapa þessum leik. Mér fannst við vera með leikinn algjörlega í okkar höndum, vorum betri en þeir í fyrri hálfleik. Við fengum þrjú góð færi til að skora en setjum bara eitt mark," sagði Lárus Orri.
„Fram að markinu þeirra vorum við með leikinn, í rauninni eitt lið á vellinum. Það er með ólíkindum að við höfum tapað þessum leik. Nú erum við búnir að spila tvo leiki við Breiðablik þar sem við erum betri aðilinn nánast allan tímann en núll stig. Það er með ólíkindum."
Það var búist við miklu af ÍA fyrir tímabilið en liðið situr í 9. sæti meeð 15 stig eftir 13 umferðir.
„Við höfum verið að spila vel en stigin hafa ekki verið að skila sér. Hins vegar er mjög margt gott í þessum leik. Að sjá Steina koma aftur í byrjunarliðið, hann stóð sig mjög vel. Styrmir Jóhann kemur í bakvörðinn því Jón Gísli er meiddur, hann stóð sig mjög vel. Mér fannst Gísli Eyjólfsson mjög flottur, Gummi er að spila vel enn og aftur. Það er mjög margt gott sem við getum tekið með okkur í næsta leik," sagði Lárus Orri.
„Þetta er erfitt þegar stigin eru ekki að skila sér. Við erum í hörku baráttu um að reyna koma okkur aftur upp í efri hlutann og klára mótið í efri hlutanum."
Lárus Orri var ósáttur með dómgæsluna en hann fékk tiltal frá Elíasi Inga Árnasyni dómara leiksins.
„Ég var að óska eftir því við Ella að vera með samræmi. Í því tilfelli er hrint í bakið á Gumma og ekkert dæmt svo er hrint í bakið á þeirra manni og þá dæmir hann. Ég verð að segja það að þetta er vel gert hjá dómaranum, yfirleitt þegar svona aðstæður koma upp koma þeir hlaupandi að manni og henda í mann spjaldi. Hann kom bara útskýrði hvað var í gangi og áfram gakk."