Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 04. ágúst 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ginter segist ekki á förum frá Gladbach
Matthias Ginter
Matthias Ginter
Mynd: Getty Images
Chelsea og Inter hafa sýnt Matthias Ginter, leikmanni Borussia Monchengladbach, mikinn áhuga í sumar en leikmaðurinn segist þó ekki á förum.

Þessi 26 ára gamli varnarmaður spilaði glimrandi vel með Gladbach sem tryggði Meistaradeildarsæti á nýafstaðinni leiktíð.

Hann hefur verið orðaður við félög á borð við Atlético Madríd, Chelsea og Inter, en leikmaðurinn ætlar sér að vera áfram hjá Gladbach.

„Ég verð áfram hjá Gladbach. Ég hef heyrt af áhuga og það er auðvitað gaman að heyra af því en ég oft nefnt það hversu vel hlutirnir eru að ganga fyrir mig hjá Gladbach," sagði Ginter við Kicker.

Ginter var í þýska landsliðinu sem vann HM í Brasilíu árið 2014 en hann hefur spilað 29 landsleiki og skorað 1 mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner