04.08.26 - 09:37
Kári Snorrason
Fenerbahce vill Rashford - Ætla ekki að selja Gakpo

Hvar endar Rashford?

Mynd: EPA

Liverpool ætlar ekki að selja Gakpo.

Mynd: EPA

Skoraði eina markið í úrslitaleik HM.

Mynd: EPA

Roma hefur áhuga á Endrick.

Mynd: EPA

Þýski markvörðurinn á leið til Ajax.

Mynd: EPA

Hvar endar Rashford?

Mynd: EPA

Áhugi í Tyrklandi á Rashford, Liverpool hyggst halda Gakpo og PSG heldur áfram að reyna við Ferran Torres. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.
Fenerbahce er tilbúið að greiða væna summu til að fá enska framherjann Marcus Rashford (28) frá Manchester United í sumar. (The Sun)
Fílabeinsstrendingurinn Yan Diomande (19) mun ekki taka þátt í æfingaferð RB Leipzig á undirbúningstímabilinu. Hann hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid en Leipzig setur 130 milljóna evra verðmiða á kantmanninn. (The Athletic)
Arsenal hefur hafið viðræður við Newcastle um kaup á brasilíska miðjumanninum Bruno Guimaraes (28). Lundúnaliðið vonast til að klófesta hann fyrir 70 til 80 milljónir punda. (The Telegraph)
PSG leggur aukið kapp á að sækja Ferran Torres (26) frá Barcelona en félögin eru í viðræðum. (Fichajes)
Liverpool hefur engin áform um að selja hollenska sóknarmanninn Cody Gakpo (27), þrátt fyrir áhuga Tottenham. (Daily Mail)
Þá ætlar Sunderland ekki að selja sóknarmanninn Wilson Isidor (25) í sumar, þrátt fyrir áhuga margra félaga, þar á meðal West Ham. (Sky Sports)
Þýski markvörðurinn Marc-Andre ter Stegen (34) er á leið til Ajax á eins árs láni frá Barcelona. (Sport)
Aston Villa undirbýr 30 milljóna punda tilboð í spænska miðjumanninn Marc Bernal (19), leikmann Barcelona. (The Sun)
Roma hefur sýnt brasilíska framherjanum Endrick (20) hjá Real Madrid áhuga. (Fichajes)
Coventry er á meðal þriggja úrvalsdeildarfélaga sem vilja fá úkraínska kantmanninn Mykhailo Mudryk (25) frá Chelsea sem losnaði úr lyfjabanni fyrir helgi. (Daily Mail)
Nýliðarnir þrír, Hull, Ipswich og Coventry, hafa áhuga á enska miðjumanninum Tim Iroegbunam (23), leikmanni Everton. (Teamtalk)
Man Utd hefur tjáð enska miðjumanninum Toby Collyer (22) að hann megi yfirgefa félagið í sumar. Nokkur lið í ensku B-deildinni hafa áhuga á honum. (The Sun)
Tottenham er við það að lána enska kantmanninn Mikey Moore (18) til þýska félagsins Köln. (Teamtalk)