04.08.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Viktor Bjarki: Get ekki ímyndað mér betra umhverfi til að þroskast í

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Viktor Bjarki Daðason skrifaði í gær undir nýjan samning við FC Kaupmannahöfn sem gildir til ársins 2031.
Viktor Bjarki er 18 ára gamall framherji en hann gekk til liðs við félagið frá Fram árið 2024 og var færður upp í aðalliðið í janúar á þessu ári. Hann hefur spilað 29 leiki og skorað tíu mörk.
Hann er fjórði yngsti leikmaður sögunnar til að skora í Meistaradeildinni þegar hann skoraði í 4-2 tapi gegn Dortmund í október. Þá skoraði hann gegn Barcelona á Nývangi í janúar.

TENGT EFNI
Viktor Bjarki framlengir við FCK
„Það er frábær tilfinning að skrifa undir þennan samning. Ég hef unnið hörðum höndum að þessu á hverjum einasta degi. Ég er ótrúlega stoltur og ánægður með að félagið hafi sýnt mér svona mikið traust,“ sagði Viktor Bjarki í viðtali á heimasíðu FCK.
„FC Kaupmannahöfn hefur haft skýra þróunaráætlun fyrir mig frá upphafi og nú höfum við sett okkur ný markmið saman. Ég get ekki ímyndað mér betra umhverfi til að þroskast í og mér finnst svo gaman að vera hér. Bæði þjálfarar, starfsfólk og liðsfélagar hvetja mig á hverjum degi til að verða betri og ég hlakka virkilega til að halda áfram ferðalagi mínu hér, skora mörg mörk og vinna bikara með liðinu.“
Það var einnig rætt við Kristjaan Speakman, yfirmann fótboltamála hjá FCK. Hann er gríðarlega ánægður að Viktor hafi trú á félaginu.
„Þróun hans síðustu tólf mánuði hefur verið ótrúlega spennandi og hugarfar hans beinist að því að bæta sig og hámarka möguleika sína. Ég hef notið samræðna minna við hann um næsta áfanga ferils hans hjá okkur og hann getur þróast í algjöran lykilmann fyrir félagið ef hann heldur áfram jákvæðri þróun sinni.“
Bo Svenson, þjálfari liðsins, segir að það sé spennandi að vinna með Viktori.
„Hann getur klárað boltann á ótrúlega fjölbreyttan hátt. Hann er þroskaður í leikstíl sínum, lærir hratt. Á sama tíma er hann ótrúlega hollur þróun sinni og framförum liðsins. Það er sannarlega ánægja að vinna með honum og við hlökkum til að halda áfram þróun hans saman.“

Heimild: FCK.dk

Mynd: EPA