Fotbolti.net
04.08.26 - 08:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Upplifir drauminn á geggjuðum stað - „Mjög þakklátur fyrir hvað hann hefur hjálpað mér mikið"

Mig langar að byrja á því að koma mér í liðið og hjálpa því að ná í sigra og skora nokkur mörk

Mig langar að byrja á því að koma mér í liðið og hjálpa því að ná í sigra og skora nokkur mörk

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er virkilega gaman að vera orðinn leikmaður Århus Fremad," segir Ingimar Arnar Kristjánsson sem var kynntur sem nýr leikmaður danska 1. deildar félagsins í síðustu viku.

Ingimar var keyptur frá uppeldisfélaginu Þór og skrifar undir þriggja ára samning í Árósum.
Ingimar kominn til Árósa (Staðfest)
TENGT EFNI

Ingimar kominn til Árósa (Staðfest)

Geggjaður staður og félagið vildi mikið fá hann
„Aðdragandinn var nú ekki mikill, fékk bara símtal frá umboðsmanninum um að þeir vildu fá mig og u.þ.b. viku seinna var ég mættur út," segir framherjinn.

Ingimar var nokkuð iðinn við kolann í yngri flokkunum en fór hægt af stað í markaskorun í meistaraflokki. Hann er 21 árs og skoraði sín fyrstu deildarmörk á síðasta ári, þrjú talsins, þegar Þór vann Lengjudeildina.

„Ég er ekki alveg klár á því hvernig þeir hjá félaginu vissu af mér, en ég var alveg búinn að eiga það samtal bæði við Svenna (Svein Elías Jónsson) formann og umboðsmanninn að mig langaði einhvern tímann að prófa það að spila úti."

„Það sem heillaði mig við Århus Fremad var hversu mikið þeir vildu fá mig og þó svo ég væri meiddur. Ég talaði líka við þjálfarann og leist bara vel á þetta. Einnig er þetta geggjaður staður og það skiptir líka máli."


Hafði þig dreymt lengi um að verða atvinnumaður?

„Já, algjörlega. Mig hefur langað þetta lengi og þegar þetta kom upp þá langaði mig að stökkva á þetta og tilfinningin er mjög góð."

Erfitt að fara frá bestu vinunum og liðinu í brekku
Var erfitt að fara frá Þór?

„Já, það var alveg frekar erfitt, sérstaklega því við erum svo margir þarna búnir að vera saman upp alla yngri flokkana og erum bara bestu vinir."

Leið þér eins og þú værir pottþétt að fara þegar þetta varð möguleiki?

„já, í rauninni þá varð það strax ljóst að ég myndi fara út þegar þetta kom upp. Ég talaði við Svenna formann hjá Þór og við komumst að þeirri niðurstöðu að þeir ætluðu ekki að stoppa mig af í þessu og er ég mjög þakklátur þeim. Á sama tíma er líka erfitt að fara frá Þór sérstaklega núna þegar liðið er í smá brekku en ég veit þeir munu klára þetta vel og halda sér uppi."

Sigurmarkið gegn Val toppurinn
Ingimar skoraði þrjú mörk í ellefu leikjum í Bestu deildinni, þar af voru tveir sem byrjunarliðsmaður. Hvernig var að spila með Þór í Bestu?

„Það var í raun geðveikt að spila með Þór í bestu, þótt þetta hafi nú ekki verið margir leikir þá var þetta gaman."

„Besta mómentið verð ég að segja var þegar við unnum Val 1-2 á útivelli í fyrsta leik og ég skoraði seinna markið sem tryggði okkur sigurinn. Stuðningsmennirnir voru ótrúlegir allan leikinn!"
segir Ingimar sem tryggði Þór þar fyrsta sigurinn í efstu deild í rúmlega 4000 daga.

Ingimar hefur verið að glíma við meiðsli á öxl. Hvernig er staðan?

„Skrokkurinn er bara góður, öxlin öll að koma til og ég býst við því að vera klár í að spila eftir 1-2 vikur."

Ræddi við Greko, Sigga og Ólaf
Ólafur Dan Hjaltason er jafnaldri Ingimars og spilar með Århus Fremad. Áttiru samtöl við einhverja áður en þú tókst skrefið út?

„Já, ég talaði mikið við Greko, hann hefur mikla reynslu bæði úr þessari deild og efstu og hann hafði i raun ekkert slæmt að segja."

„Einnig ræddi ég við Sigga þjálfara og hann studdi mig mikið í þessu ferli, peppaði mig og er ég mjög þakklátur fyrir það hvað hann hefur hjálpað mér mikið bæði i þessu ferli og sem leikmanni."

„Ég talaði líka við Ólaf sem er í liðinu, hann var meira að segja mér frá klúbbnum og svoleiðis, þannig já þeir þrír hjálpuðu mér mikið. Ég þekkti Ólaf aðeins og það er mjög þægilegt að hafa einn þarna sem talar íslensku."


Byrjar á að vinna sig inn í liðið
Hvað langar þig að afreka með Århus Fremad?

„Mig langar að byrja á því að koma mér í liðið og hjálpa því að ná í sigra og skora nokkur mörk. Svo væri geggjað að komast í topp sex og spila þá stærri leiki í lok tímabils," segir Ingimar.

Århus Fremad er með þrjú stig eftir tvo leiki í dönsku B-deildinni.

Hélt að danskan væri betri
En að lokum, hvernig er danskan?

„Skoo verð að segja að ég hélt ég væri betri, ég skil svona aðeins um hvað þeir eru að tala þegar þeir eru að spjalla án þess að skilja endilega öll orðin. En ég held ég verði ekkert of lengi að ná tökum á dönskunni," segir Þórsarinn að lokum.
Það sem heillaði mig við Århus Fremad var bara hversu mikið þeir vildu fá mig og þó svo ég væri meiddur

Það sem heillaði mig við Århus Fremad var bara hversu mikið þeir vildu fá mig og þó svo ég væri meiddur

Canon

Mynd: Aarhus Fremad

Ólafur Dan Hjaltason er leikmaður Århus Fremad.

Ólafur Dan Hjaltason er leikmaður Århus Fremad.

Canon

Mynd: Aarhus Fremad

Christian Greko Jakobsen, leikmaður Þórs, á að baki marga leiki í efstu og næstefstu deild Danmerkur.

Christian Greko Jakobsen, leikmaður Þórs, á að baki marga leiki í efstu og næstefstu deild Danmerkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Siggi Höskulds er á þriðja ári sem þjálfari Þórs.

Siggi Höskulds er á þriðja ári sem þjálfari Þórs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði þrjú mörk í ellefu leikjum í Bestu.

Skoraði þrjú mörk í ellefu leikjum í Bestu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Veit þeir munu klára þetta vel og halda sér uppi

Veit þeir munu klára þetta vel og halda sér uppi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.