fös 04. september 2020 09:19
Magnús Már Einarsson
Sancho og Badiashile til Man Utd?
Powerade
Jadon Sancho.
Jadon Sancho.
Mynd: Getty Images
Chris Smalling
Chris Smalling
Mynd: Getty Images
Ensku slúðurblöðin gefa ekkert eftir. Hér er allt helsta slúðrið í dag.


Aurelio de Laurentiis, forseti Napoli, segir að félagið vilji fá gríska varnarmanninn Sokratis Papastathopoulos (32) frá Arsenal. Kalidou Koulibaly (29) gæti í kjölfarið farið til Manchester City. (Standard)

De Laurentiis segist sjá eftir að hafa ekki selt Koulibaly (29) fyrr. (Manchester Evening News)

Faðir Lionel Messi (33) hefur fundað með Barcelona undanfarna tvo daga. (Sky sports)

Luis Suarez (33) framherji Barcelona hefur rætt við Giorgio Chiellini, varnarmann Juventus, til að hreinsa loftið þeirra á milli. Suarez beit Chiellini eftirminnilega á HM 2014 en þeir gætu nú orðið liðsfélagar hjá Juventus. (Talksport)

Roma er að kaupa varnarmanninn Chris Smalling (30) frá Roma. (Mirror)

Mónakó hefur fengið tilboð frá Manchester United í varnarmanninn Benoit Badiashile (19). (Metro)

Manchester United er að reyna að ganga frá samningi við Jadon Sancho (20) og umboðsmann hans áður en félagið gerir Borussia Dortmund tilboð. (Star)

Joshua King (28) framherji Bournemouth segir að það yrði ótrúlegt ef að Manchester United myndi aftur reyna að kaupa sig. United vildi kaupa Norðmanninn í janúar síðastliðnum. (Star)

Sevilla vonast ennþá eftir að geta fengið vinstri bakvörðinn Sergio Reguilon (23) frá Real Madrid en hann hefur einnig verið orðaður við Manchester United. (Marca)

Arsenal er að fá miðjumanninn Dani Ceballos (24) aftur á láni frá Real Madrid. (Mail)

Arsenal er að íhuga að fá Felipe Anderson (27) miðjumann West Ham. (Football Insider)

Liverpool ætlar ekki að láta Harry Wilson (23) fara aftur á láni þrátt fyrir áhuga frá Newcastle, Leeds og Southampton. (Liverpool Echo)

Chelsea hefur fengið þau skilaboð að félagið verði að greiða að minnsta kosti 30 milljónir punda til að fá markvörðinn Edouard Mendy (28) frá Rennes. (Telegraph)

Inter þarf að selja Ivan Perisic ef félagið ætlar að kaupa N'Golo Kante (29) frá Chelsea. (Gazzetta dello Sport)

Crystal Palace, West Ham, West Brom, Norwich og Watford vilja fá varnarmanninn Jean-Claude Billong (26) frá Salernitana í Serie B á Ítalíu. (Teamtalk)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner