Fotbolti.net
09.09.26 - 13:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Einn mesti markaskorari Aftureldingar verður ekki með

Haukur Brink tæpur

Elmar Kári verður að öllum líkindum ekki með.

Elmar Kári verður að öllum líkindum ekki með.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Elmar Kári Enesson Cogic (2002) verður að öllum líkindum ekki með Aftureldingu í bikarúrslitaleiknum á föstudag þegar liðið mætir Breiðabliki. Elmar Kári hefur glímt við meiðsli og Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, býst ekki við að hann verði klár.

„Það komu allir heilir út úr leiknum á móti Njarðvík (síðasta laugardag). Bart Kooistra og Sævar Atli Hugason voru í banni í þeim leik og koma inn. Við mætum brattir inn í leikinn með hópinn okkar."

„Ég reikna með því að Haukur Brink verði klár, hann hefur glímt við meiðsli í lok móts en ég reikna með að hann verði klár,"
segir Maggi við Fótbolta.net.
„Það lítur út fyrir að Elmar nái ekki leiknum, því miður. Leiðinlegt fyrir hann fyrst og fremst, uppalinn strákur sem hefur lagt mikið á sig og verið lykilmaður undanfarin ár. Leiðinlegt fyrir hann hvað hann er búinn að vera óheppinn með meiðsli í sumar, verið mikið frá. Við skulum vona að það séu bjartari tímar framundan hjá honum," segir Maggi.

Haukur Örn Brink (2005) er lánsmaður frá Stjörnunni sem hefur skorað þrjú mörk í sex leikjum fyrir Aftureldingu. Elmar Kári hefur spilað tólf leiki í deild og bikar í sumar og skorað í þeim átta mörk.
Haukur hefur komið vel inn í lið Aftureldingar.

Haukur hefur komið vel inn í lið Aftureldingar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Már: Segir sig sjálft á hverjum pressan er

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.