04.11.14 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Hildur og Laufey framlengja við Val (Staðfest)

Hildur í baráttunni gegn Selfyssingum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hildur í baráttunni gegn Selfyssingum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tvær knattspyrnukonur sem leika með Val hafa framlengt samninga sína við félagið sem leikur í íslensku Pepsi-deildinni.
Þetta eru tvær leikreyndar konur sem hafa leikið hjá Val síðustu tímabil, eða Hildur Antonsdóttir og Laufey Björnsdóttir.
Þetta eru tvær leikreyndar konur sem hafa leikið hjá Val síðustu tímabil, eða Hildur Antonsdóttir og Laufey Björnsdóttir.
Hildur er 19 ára miðjumaður sem á 73 leiki að baki með Val og skoraði hún sex mörk í 15 leikjum í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili.
Laufey er 25 ára og hefur spilað 61 leik fyrir Val og lék 18 leiki með Val í deildinni í fyrra. Báðar eru þær reyndar með unglingalandsliðum Íslands.
Hér fyrir neðan má sjá myndband þar sem stúlkurnar eru teknar í viðtal og fara fögrum orðum um framhaldið.

Heimild: valur.is