Fotbolti.net
04.11.15 - 14:12
Elvar Geir Magnússon
- Pepsi-deildin

Bjarni Jó: Ansi harður leikmannabardagi

Auglýsing
Bjarni Jóhannsson með Pablo í dag.

Bjarni Jóhannsson með Pablo í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV, er í skýjunum með að hafa krækt í miðjumanninn Pablo Punyed sem leikið hefur með Stjörnunni síðustu tvö ár. Fótbolti.net ræddi við Bjarna á fréttamannafundi í dag og má heyra viðtalið í spilaranum hér að ofan.
„Þetta er mjög sterkt fyrir okkur. Þetta er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til félagsins fyrir næsta tímabil. Vonandi náum við að mann okkur vel upp fyrir næsta ár. Það verða miklar breytingar á hópnum, það er þegar ljóst. Það er lítið annað að gera en að berjast um bestu bitana,\" segir Bjarni.

„Pablo er búinn að vera hérna fjögur tímabil og tímabilin tvö hjá Stjörnunni hafa verið mjög flott hjá honum. Þess vegna er þetta mikill fengur fyrir okkur að fá hann. Við hugsum hann fyrst og fremst sem miðjumann og hann ætti að passa vel í mína hugmyndafræði og þennan Eyjastíl.\"

ÍBV hefur misst Víði Þorvarðarson og Spánverjann Sito til Fylkis þar sem Hermann Hreiðarsson, Eyjamaður og fyrrum þjálfari ÍBV, er við stjórnvölinn. Er enginn pirringur út í Hermann í Eyjum?

„Ég veit það ekki, það getur vel verið en þetta er harður bransi. Þessi leikmannabardagi sem er í gangi núna er ekki síður harður en það sem er inni á vellinum. Vonandi tekst okkur að halda öllum leikreglum í þessu.\"

„Við höfum rætt við nokkra leikmenn og vonandi skýrist það um og yfir helgina. Við viljum gott og vinnusamt lið og þegar maður nær svona gæðaleikmanni eins og Pablo gefur það enn meiri möguleika á að ná árangri. Hann hreifst af þessu sem við ætlum að gera og er lykilmaður í okkar liði. Það er ekkert vafamál,\" segir Bjarni.

Viðtalið má heyra í heild í spilaranum hér að ofan en þar segir Bjarni að væntanlega verði gengið frá ráðningu aðstoðarþjálfara á næstu dögum. Hann staðfestir að viðræður séu í gangi við Alfreð Elías Jóhannsson, fyrrum þjálfara BÍ/Bolungarvíkur og Ægir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.