Fotbolti.net
05.11.26 - 16:24
Elvar Geir Magnússon

„Auðvitað verður hann í markinu“ þrátt fyrir mistökin

James Trafford kom til Leeds frá Man City.

James Trafford kom til Leeds frá Man City.

Canon

Mynd: EPA

James Trafford verður í marki Leeds gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á laugardag þrátt fyrir dýrkeypt mistök í 2-0 tapinu gegn Bournemouth í síðustu umferð.

Trafford gerði sjaldséð mistök þegar Justin Kluivert leikmaður Bournemouth komst inn í misheppnaða sendingu hans og Evanilson skoraði í tómt markið. Hægt er að sjá mistökin neðst í fréttinni.

Leeds hafði byrjað leikinn betur en Bournemouth komst yfir með þessu marki á 31. mínútu.
Daniel Farke, stjóri Leeds, sagði Trafford að horfa ekki á atvikið aftur.

„Hann hefur staðið sig frábærlega og unnið stig fyrir okkur. Sem ungur markvörður mun hann læra af þessu. Það er mikilvægt fyrir mig að hann missi ekki sjálfstraustið og ég vil ekki að hann breyti leik sínum. Auðvitað verður hann í markinu um helgina," segir Farke.

Trafford, sem er 24 ára, var keyptur til Leeds í sumar frá Manchester City fyrir meira en 40 milljóna punda og er dýrasti leikmaður í sögu Leeds.

Leeds, sem er í tólfta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fær Tottenham í heimsókn í hádegisleiknum á laugardag. Sóknarmaðurinn Dominic Calvert-Lewin æfði ekki með Leeds í dag vegna smávægilegra meiðsla en búist er við því að hann geti æft á morgun.

„Auðvitað verður hann í markinu“ þrátt fyrir mistökin
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.