Fotbolti.net
05.11.26 - 14:06
Kári Snorrason

Arnar lofsyngur Orra - „Margar efasemdir þegar ég valdi hann sem fyrirliða“

Orri Steinn boðaði til fundar í Tallinn eftir að agabrotin komust upp.

Orri Steinn boðaði til fundar í Tallinn eftir að agabrotin komust upp.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Arnar Gunnlaugsson fór fögrum orðum um landsliðsfyrirliðann Orra Stein Óskarsson bæði á blaðamannafundi landsliðsins og í viðtölum í gærdag.

Arnar gerði Orra að fyrirliða þegar hann tók við íslenska landsliðinu í byrjun síðasta árs. Orri var þá tvítugur.

Greint hefur verið frá því að Orri boðaði til fundar innan landsliðshópsins eftir að agabrot nokkurra leikmanna komust upp.
Orri Steinn kallaði til fundar í Tallinn
TENGT EFNI

Orri Steinn kallaði til fundar í Tallinn

„Bentu mér á annan fyrirliða sem er 22 ára og búinn að stíga svona svakalega upp. Þegar ég valdi hann sem fyrirliða voru örugglega margar efasemdir. Þó að menn hafi kannski ekki sagt það opinberlega þá fór sú umræða örugglega af stað í einhverjum reykmettum bakherbergjum," sagði Arnar í viðtali við Fótbolta.net í gær og hélt áfram.

„Það er ekki bara hvað hann er búinn að skora mikið heldur líka hvað hann er búinn að taka til sín. Leiðtogahlutverkið utan vallar innan hópsins og hvernig hann kemur fram í fjölmiðlum og svarar fyrir sig," sagði Arnar en Orri hefur verið iðinn við kolann með Íslandi og hefur hann skorað tólf landsliðsmörk í 22 leikjum.

„Ég átti von á að hann yrði mjög sterkur fyrirliði en það myndi kannski þróast með árunum. En bara frá fyrsta degi er hann bara búinn að tækla þessa stöðu og eigna sér hana. Það að hafa ákveðnir leikmenn hjálpað honum til þess, ég nefndi Aron (Einar) áðan og örugglega fleiri leikmenn.

En fyrst og fremst bara kredit á hann og hvernig hann er búinn að tækla þetta verkefni á þessum aldri. Ég get sko lofað því þegar ég var 21, 22 ára þá var ég ekki tilbúinn í það sem hann er búinn að gera,"
sagði Arnar að lokum.
Arnar gerði Orra að fyrirliða þegar hann tók við íslenska landsliðinu í byrjun síðasta árs.

Arnar gerði Orra að fyrirliða þegar hann tók við íslenska landsliðinu í byrjun síðasta árs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland mætir Búlgaríu og Lúxemborg í komandi verkefni í Þjóðadeildinni.

Ísland mætir Búlgaríu og Lúxemborg í komandi verkefni í Þjóðadeildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrsta hugsun að henda öllum heim - „Þetta voru bara svik“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.