Fotbolti.net
05.11.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kom aldrei til tals að Dóri tæki strax við Val

Chriz Brazell stýrði liðinu seinni hluta tímabilsins.

Chriz Brazell stýrði liðinu seinni hluta tímabilsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í lok júní var Hermann Hreiðarsson látinn fara frá Val og aðstoðarmaður hans, Chris Brazell, tók við liðinu út tímabilið.

Á sama tímapunkti var tilkynnt að Halldór Árnason tæki við liðinu eftir tímabilið.

Margir spurðu sig að því. þar sem illa gekk hjá Val, hvers vegna Dóri tæki ekki strax við liðinu.

Þjálfarinn er nú byrjaður í sinni vinnu á Hlíðarenda og var spurður hvort það hefði komið til tals að hann kæmi strax inn í sumar.
Dóri mættur á Hlíðarenda - „Ég vil að Valur spili annan fótbolta"
TENGT EFNI

Dóri mættur á Hlíðarenda - „Ég vil að Valur spili annan fótbolta"

Á þeim tíma, var aldrei rætt um þann möguleika að þú tækir strax við liðinu?

„Nei, það raunverulega var strax frá upphafi lagt þannig upp að það lægi fyrir að yrðu breytingar á meistaraflokki karla; breytingar á, á starfsfólki og eins og leit út fyrir og hefur raungerst, þá hafa töluverðar breytingar á leikmannahópnum einnig átt sér stað."

„Það var lagt upp þannig að þeir sáu mig sem spennandi kost til að taka við þessu og þannig að það væri best að fá mig ferskan inn, með hreint blað; nýjan hóp, nýtt lið og nýtt upphaf - einhvern veginn frekar en að vera koma inn í það sem var áður og ég var svo sem sammála með það,"
sagði Dóri í viðtali í dag.

Kitlaði að fá að vera á hliðarlínunni
Hugsaðir þú þegar það var spírall niður á við, hvort þú ættir ekki að taka við þessu strax, burtséð frá því hvort stjórn Vals vildi það eða ekki?

„Eðlilega voru auðvitað leikir þar sem hugsunin kom upp, ekki bara þegar það gekk illa, ég fékk mikinn fiðring líka í kringum Evrópukeppnina, Chris gerði auðvitað frábærlega í Evrópu og sló út góðkunningja mína í Zrinjski Mostar sem mér hefur ekki tekist ennþá. Þá var mikill fiðringur að fara í Evrópuferðir og vera að stýra þessu. Auðvitað saknaði maður þess að þjálfa, en aldrei á þeim skala að það hefði einhvern tímann komið til tals að breyta planinu sem hafði verið gert í júní," sagði þjálfarinn.
Valur sló út Zrinjski Mostar.

Valur sló út Zrinjski Mostar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dóri fylgdist með íslenska boltanum úr stúkunni.

Dóri fylgdist með íslenska boltanum úr stúkunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.