Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 04. nóvember 2020 19:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mikael rekinn frá Njarðvík?
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Í slúðurheimum er það helst að Mikael Nikulásson sé ekki lengur þjálfari meistaraflokks Njarðvíkur.

Ástríðan vakti athygli á þessu á Twitter og í kjöflarið hefur fréttaritari haft samband við formann knattspyrnudeildar sem og stjórnarmann.

Hvorki Gylfi Þór Gylfason, formaður né stjórnarmaður sem undirritaður náði tali á gat tjáð sig um málið. Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net kemur tilkynning frá félaginu á morgun.

Mikael tók við sem þjálfari liðsins fyrir síðustu leiktíð og var með liðið í 4. sæti þegar móti var slaufað eftir tuttugu umferðir.

Bjarni Jóhannsson, sem þjálfað hefur Vestra undanfarin ár, er orðaður við þjálfarastöðuna í Njarðvík.


Athugasemdir
banner
banner
banner