Fotbolti.net
04.11.20 - 22:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mikael rekinn frá Njarðvík (Staðfest)

Mikael rekinn frá Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikael Nikulásson er ekki lengur þjálfari meistaraflokks Njarðvíkur. Þetta staðfestir hann í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í kvöld.

Mikael stýrði liðinu á liðinni leiktíð og vann liðið tólf sigra í tuttugu leikjum. Liðið endaði í fjórða sæti 2. deildar, þremur stigum frá 2. sætinu þegar mótið var blásið af á föstudag. Þá voru tvær umferðir eftir af deildinni.

Mikael var að koma aftur inn í þjálfun eftir talsverða fjarveru en hann hafði áður þjálfað ÍH, árin 2006-2010 og Núma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.