Fotbolti.net
04.12.14 - 17:05
Magnús Már Einarsson

Aron Bjarnason í ÍBV (Staðfest) - Bjarni framlengir

Aron Bjarnason.

Aron Bjarnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Bjarnason skrifaði undir þriggja ára samning við ÍBV á fréttamannafundi nú fyrir stundu.

Bjarni Gunnarsson framlengdi við sama tækifæri samning sinn við félagið um þrjú ár.
Aron kemur til ÍBV frá Fram þar sem hann hefur leikið frá í ágúst 2013. Aron lék upp alla yngri flokka og upp í meistaraflokk karla hjá Þrótti Reykjavík. Hann á að baki 15 leiki í 1. deild karla með Þrótturum og 25 leiki í Pepsí-deild karla með Fram.

Með Fram skoraði hann 4 mörk á síðustu leiktíð í 17 leikjum. Aron á að baki 10 landsleiki með U19 landsliði Íslands.

Bjarni gekk til liðs ÍBV um mitt ár 2013 frá Fjölni. Bjarni á að baki 82 leiki í meistaraflokki, þar af 25 leiki með ÍBV.

Að auki hefur hann spilað alls 16 leiki með yngri landsliðum Íslands, 7 leiki með U17 og 9 leiki með U19.
Bjarni Gunnarsson.

Bjarni Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.