04.12.14 - 12:12
Magnús Már Einarsson
Elvar Ingi í Fjarðabyggð (Staðfest)

Elvar Ingi með boltann í leik gegn Fjarðabyggð í sumar. Fyrir aftan er Alexander Aron sem gekk einnig til liðs við Fjarðabyggð á dögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn ungi Elvar Ingi Vignisson hefur gengið til liðs við Fjarðabyggð.
Elvar Ingi er uppalinn hjá Aftureldingu en þessi 19 ára gamli leikmaður hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með meistaraflokki félagsins undanfarin fjögur ár.
Elvar Ingi virtist vera á leið í Víking R. á dögunum en hann ákvað á endanum að semja við Fjarðabyggð sem sigraði 2. deildina í sumar.
Hann fer þar með sömu leið og sóknarmaðurinn Alexander Aron Davorsson sem fór frá Aftureldingu í Fjarðabyggð á dögunum.

Elvar Ingi skoraði níu mörk í annarri deildinni í sumar en hann fór fyrr á árinu til Reading og Hammarby.
Elvar Ingi var á dögunum valinn í 48 leikmanna úrtakshóp fyrir U21 árs landslið Íslands ásamt Brynjari Jónassyni sem sló í gegn hjá Fjarðabyggð í sumar.