04.12.14 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Jordan Edridge í Selfoss (Staðfest)

Jordan Edridge.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jordan Edridge.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnudeild Selfoss hefur komist að samkomulagi við hinn 22 ára Jordan Edridge um að hann leiki með liði Selfyssinga næstu tvö árin.
Frá þessu er greint á sunnlenska.is.
Frá þessu er greint á sunnlenska.is.
Edridge er fjölhæfur varnarmaður og kemur til liðsins frá Grindavík þar sem hann lék seinustu þrjú keppnistímabil.
Hann hefur leikið 34 leiki með Grindvíkingum í Pepsi- og 1. deildinni. Hann er uppalinn hjá Chesterfield á Englandi en lék einnig með New Mills.
Í tilkynningu frá Selfyssingum segir að það sé mikil ánægja innan herbúða liðsins að hafa tryggt sér þjónustu Edridge og kemur hann til með að styrkja liðið í 1. deildinni næsta sumar.
Þá er líklegt að sóknarmaðurinn Denis Sytnik leiki með Selfossi næsta sumar samkvæmt heimildum Fótbolta.net.