04.12.14 - 17:01
Magnús Már Einarsson
Pálmi Rafn í KR (Staðfest)

Pálmi Rafn við undirskriftina í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pálmi Rafn við undirskriftina í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pálmi Rafn Pálmason hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi nú rétt í þessu.
,,Við tilkynnum með mikilli ánægju að Pálmi hefur skrifað undir samning við KR. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn,\" sagði Bjarni Guðjónsson þjálfari KR.
Pálmi Rafn hefur legið undir feldi undanfarna daga eftir að ljóst varð að hann yrði ekki áfram hjá norska félaginu Lilleström.

FH, Valur og KA vildu einnig fá Pálma í sínar raðir en hann hefur ákveðið að ganga til liðs við KR.
Pálmi mun fylla skarð Baldurs Sigurðssonar sem fór frá KR til SönderjyskE á dögunum.
Hinn þrítugi Pálmi lék með Völsungi, KA og Val áður en hann fór til Stabæk árið 2008. Hann samdi síðan við Lilleström árið 2012.