04.12.14 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Spænski landsliðsmaðurinn Rodrigo til Valencia (Staðfest)

Rodrigo hér í baráttunni við Guilherme Siqueira leikmann Atletico Madrid.

Mynd: Getty Images

Rodrigo Moreno Machado, betur þekktur sem Rodrigo, er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Valencia.
Rodrigo kom til félagsins á lánssamning frá Benfica síðasta sumar og er búinn að skrifa undir eftir frábæra frammistöðu á tímabilinu.

Peter Lim átti hlut í leikmanninum þegar hann var hjá Benfica. Þá gerði Lim samkomulag við Benfica um að lána leikmanninn til Valencia með kauprétti.
Nokkru síðar keypti Lim spænska knattspyrnufélagið Valencia og var að ganga frá endanlegum samning við Rodrigo sem spilaði nýlega sinn fyrsta A-landsleik fyrir Spánverja, 23 ára gamall.
Valencia hefur hafið tímabilið vel á Spáni og er í fimmta sæti deildarinnar með 24 stig eftir 13 leiki.

Heimild: ISF