Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. desember 2019 17:00
Magnús Már Einarsson
Van Dijk staðráðinn í að vinna HM félagsliða
Mynd: Getty Images
Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, segist vera staðráðinn í að vinna HM félagsliða með liðinu í þessu mánuði.

Liverpool spilar í undanúrslitum í Katar þann 18. desember og ef liðið vinnur þar er úrslitaleikurinn nokkrum dögum síðar.

Liverpool hefur fimm sinnum tekið þátt í HM félagsliða en aldrei unnið.

„Þetta er nýtt fyrir nánast alla í liðinu okkar," sagði Van Dijk um keppnina.

„Ég held að þetta geti orðið fyrsta Liverpool liðið til að vinna HM félagsliða. Þetta er frábær reynsla. Við erum allir spenntir fyrri að fara á mótið og vonandi náum við í bikarinn."
Athugasemdir
banner
banner
banner