Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 04. desember 2020 18:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjarki og Ósvald framlengja við Leikni (Staðfest)
Mynd: Leiknir R
Þeir Bjarki Aðalsteinsson og Ósvald Jarl Traustason hafa framlengt samninga sína við Leikni Reykjavík.

Bjarki semur út tímabilið 2022 og Ósi út tímabilið 2023.

Leiknir endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar á liðnu tímabili og leikur í Pepsi Max-deildinni á komandi tímabili.

Bjarki er uppalinn í Breiðabliki en lék með Augnabliki, Reyni S., Selfossi og Þór áður en hann gekk í raðir Leiknis árið 2017.

Ósi er einnig uppalinn í Breiðabliki. Hann hefur leikið með Fram og Gróttu á sínum ferli. Hann lék með Leikni árið 2013 og sneri aftur í Breiðholtið árið 2017.

Bjarki er fæddur árið 1991 og Ósi árið 1995.


Athugasemdir
banner
banner
banner