Allt bendi til þess að Gunnar Þorsteinsson myndi ekki leika með Grindavík á komandi leiktíð. Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Grindavíkur, greindi frá því fyrir um mánuði síðan í viðtali við Fótbolta.net.
Í dag staðfesti Grindavík svo á samfélagsmiðlum að Gunnar væri á leið í nám í auðlindaverkfræði við Columbia háskólann í Bandaríkjunum. Gunnar mun dvelja vestanhafs allt næsta ár ásamt fjölskyldu sinni.
„VIð sjáum Gunnar vonandi aftur í gulu treyjunni fyrr en síðar!" segir í færslu Grindavíkur.
„Þetta er eitthvað svaka nám sem verður það krefjandi að hann er aldrei að fara að ná að spila með okkur af einhverjum krafti. Það er gríðarlegur missir í því að Gunni sé að fara. Hann hefur skilað frábærri vinnu fyrir félagið," sagði Sigurbjörn í nóvember.
#TakkGunnar
— UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur (@umfg) December 4, 2020
Gunnar Þorsteinsson heldur í nám og mun ekki leika með Grindavík á næstu leiktíð!
Við óskum honum alls hins besta í auðlindaverkfræði í Columbia háskólanum á næsta ári.
VIð sjáum Gunnar vonandi aftur í gulu treyjunni fyrr en síðar!#umfg #grindavik
💛💙 pic.twitter.com/eb0RA7nwGn
Athugasemdir