Framherjinn Sigurður Grétar Benónýsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt ÍBV.
Hann lauk námi í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári og er fluttur heim.
Hann spilaði með Vestra á síðasta tímabili þar sem hann brá sér í ýmsar stöður í 22 leikjum og skoraði tvö mörk.
„Það er mikil ánægja með að hafa fengið Sigga heim. Velkominn Siggi og áfram ÍBV!" segir á heimasíðu ÍBV.
Sigurður Grétar er 24 ára gamall og lék með ÍBV í efstu deild 2016-2018. Á þeim tíma lék hann alls 23 leiki og skoraði 3 mörk.
ÍBV hafnaði í sjötta sæti Lengjudeildarinnar í sumar og var stigi á undan Vestra.
Athugasemdir