Fotbolti.net
05.01.15 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Alessio Cerci til Milan (Staðfest)

Cerci var frábær hjá Torino og skoraði þar meira en í fjórða hverjum leik af kantinum.

Cerci var frábær hjá Torino og skoraði þar meira en í fjórða hverjum leik af kantinum.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski sóknarmaðurinn Alessio Cerci er búinn að skrifa undir 18 mánaða lánssamning við AC Milan.

Cerci er leikmaður Atletico Madrid og kostaði félagið um 16 milljónir punda þegar hann var keyptur frá Torino í sumar.
Ítalska kantmanninum hefur ekki gengið vel frá komu sinni til Spánar og hefur enn ekki skorað í sex deildarleikjum.

Cerci kemur í stað Fernando Torres sem fór hina leiðina, frá Milan til Atletico, á svipuðum lánssamning fyrr í janúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.