Fotbolti.net
05.01.15 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Ben Arfa til Nice (Staðfest) - „Hefði hafnað Real Madrid\"

Ben Arfa gerði lítið hjá Hull.

Ben Arfa gerði lítið hjá Hull.

Canon

Mynd: Getty Images

Hatem Ben Arfa er mættur til franska félagsins Nice en hann skrifaði undir í dag.

Newcastle gafst upp á þessum 27 ára gamla Frakka og rifti samningi hans um helgina.

Ben Arfa var úti í kuldanum hjá Newcastle og hann hafði einnig málað sig út í horn hjá Hull þar sem hann var í láni fyrri hluta tímabils.
Ben Arfa er gífurlega spenntur fyrir því að spila með Nice eins og sást á fréttamannafundi í dag.

,,Ég var búinn að ákveða mig eftir tíu mínútur. Jafnvel þó að Real Madrid hefði boðið mér samning þá hefði ég sagt já við Nice,\" sagði Ben Arfa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.