Fotbolti.net
05.02.15 - 17:25
Elvar Geir Magnússon

Mike Phelan aðstoðar Steve Bruce (Staðfest)

Mike Phelan er kominn í vinnu hjá Hull.

Mike Phelan er kominn í vinnu hjá Hull.

Canon

Mynd: Getty Images

Mike Phelan hefur verið ráðinn aðstoðarstjóri Hull City og verður hægri hönd Steve Bruce knattspyrnustjóra.

Phelan er 52 ára og spilaði með Bruce hjá Manchester United. Phelan var síðar ráðinn aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson hjá United.
Á heimasíðu Hull segist Phelan vonast til að geta aðstoðað Hull og notað þá hluti sem hann hefur lært á síðustu árum.

Steve Agnew var aðstoðarstjóri Hull en fór til Middlesbrough í sömu stöðu.

Hull er í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, stigi frá öruggu sæti. Liðið mætir Manchester City á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.