Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 05. febrúar 2023 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Stellini: Kane er GOAT í þessari deild
Mynd: EPA

Cristian Stellini stýrði Tottenham til 1-0 sigurs gegn Manchester City er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag.


Stellini var við stjórn í fjarveru Antonio Conte sem þurfti að gangast undir aðgerð. Hann var augljóslega stoltur af sínum mönnum fyrir að sigra eitt af bestu fótboltaliðum heims enn eina ferðina. Þetta var fimmti sigur Tottenham í röð á heimavelli gegn Man City.

„Við vissum að þetta yrði erfitt án Antonio en strákarnir neyddu sig upp á næsta stig og það gekk upp. Við þjálfararnir erum mjög stoltir og ánægðir fyrir hönd leikmanna, félagsins, Harry Kane og einnig fyrir hönd Antonio. Antonio er fjarri okkur og ekki við bestu heilsu sem stendur. Hann þarf að halda sér rólegum og þess vegna kom hann ekki nálægt þessum leik. Ég er nýbúinn að tala við hann og hann var mjög ánægður," sagði Stellini að leikslokum. ,,Ég talaði ekki við hann á meðan á leiknum stóð en við fengum nokkur skilaboð frá honum."

Stellini var spurður út í ýmislegt og talaði meðal annars um ótrúleg gæði Harry Kane og flotta frammistöðu Emerson Royal.

„Harry Kane er ótrúlegur, hann er með alvöru fótboltablóð. Hann skilur leikinn á hverri einustu sekúndu og er leikmaður sem gæti spilað hvaða stöðu sem er á vellinum. Hann er GOAT í þessari deild og í þessari íþrótt. Hann er alvöru fyrirmynd. Svo var Emerson fullkominn í dag. Þegar okkur gengur vel þá er hann mjög góður en hann þarf að verða betri í mismunandi aðstæðum."


Athugasemdir
banner
banner
banner