17.09.26 - 20:14
Brynjar Ingi Erluson
Stjarna Chelsea snýr aftur í enska landsliðið - Maguire ekki í myndinni

Cole Palmer er að snúa aftur í landsliðið

Mynd: EPA

Maguire er ekki í myndinni hjá Tuchel

Cole Palmer, leikmaður Chelsea, verður í enska landsliðshópnum fyrir komandi verkefni í Þjóðadeildinni, samkvæmt Sun.
Palmer var ekki valinn í enska landsliðshópinn fyrir HM í sumar og var vonsvikinn með þá ákvörðun, en hann hefur fundið sig á ný undir Xabi Alonso og er nú á leið aftur í hópinn.
Tuchel tilkynnir hópinn á morgun en England mætir Króatíu og Spáni auk þess að leika tvo leiki gegn Tékklandi.
Scott og Ngumoha gætu komið inn, en Maguire ekki í myndinni
Fleiri leikmenn eru taldir líklegir til að fá kallið og ætlar Tuchel að gefa nokkrum ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri. Þar á meðal eru Alex Scott hjá Bournemouth og hinn 18 ára gamli Rio Ngumoha hjá Liverpool.
Báðir æfðu með enska landsliðinu fyrir HM í sumar. Ngumoha þreytti þá frumraun sína, aðeins 17 ára gamall, í 1-0 sigri á Nýja-Sjálandi í Flórida.
Tuchel sagði á dögunum í viðtali við Daniel Sturridge, fyrrum landsliðsmann Englands, að hann ætlaði sér að opna dyrnar fyrir yngri leikmönnum.
„Ég er spenntur að fá nýju ungu leikmennina inn í hópinn þar sem þeir geta lært inn á okkur,“ sagði Tuchel.
John Stones verður ekki klár vegna meiðsla og ekki er búist við því að Harry Maguire snúi aftur í hópinn. Hann fór ekki með á HM í sumar og lýsti síðar opinberlega yfir vonbrigðum sínum.
Tuchel glímir einnig við vanda í markvarðastöðunni. Dean Henderson hefur verið meiddur og þeir Aaron Ramsdale og Nick Pope fengið lítið að spila. Carl Rushworth, markvörður Coventry, gæti því fengið sitt fyrsta kall í landsliðshópinn.