Fotbolti.net
05.03.21 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kom bakslag í meiðsli Lamptey

Lamptey fór gríðarlega vel af stað á tímabilinu.

Lamptey fór gríðarlega vel af stað á tímabilinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Tariq Lamptey er enn frá vegna meiðsla og verður ekki með Brighton gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Þessi tvítugi leikmaður fór frábærlega af stað á tímabilinu en hefur ekki getað spilað síðan 16. desember vegna meiðsla aftan í læri.

Vonast var til að hann myndi spila gegn Leicester en svo verður ekki. Það kom bakslag í meiðsli hans.

„Hann er að hitta sérfræðing og hann verður ekki klár fyrir helgina," sagði Graham Potter, stjóri Brighton.

Brighton hefur saknað Lamptey en liðið er aðeins þremur stigum frá fallsvæðinu núna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.