Guðmundur Þórarinsson var í byrjunarliði New York City FC þegar liðið vann æfingaleik gegn DC United í gær.
Gudi, eins og Guðmundur er oft kallaður, átti sendingu á Valentin Castellanos á 25. mínútu eftir laglega sókn. Castellanos kláraði með marki og stoðsendingin Guðmundar. Hana má sjá hér að neðan.
Leikar enduðu 2-1 fyrir New York og spilaði Guðmundur fyrstu 75 mínútur leiksins. MLS-deildin hefst eftir tæpar tvær vikur.

Bjarni Mark Antonsson spilaði þá fyrstu 64. mínúturnar í tapi Brage gegn Djurgarden. Brage er að undirbúa sig fyrir tímabilið í sænsku Superettan sem hefst um næstu helgi.
Bjarni var á sínum stað á miðjunni og átti að eigin sögn rosalegan klobba í leiknum - („En það er ekki frásögufærandi").
Sjá einnig:
„Enginn annar komist svona langt án þess að eiga alvöru landsleik"
Bjarni fylgdi lönguninni, flutti erlendis og vann sig upp í fótboltaheiminum - „Mjög hollt og lærdómsríkt"
Bjarni Mark
Textbook 📘 pic.twitter.com/vpB6kCfiGA
— New York City FC (@NYCFC) April 5, 2021
Athugasemdir